11. sep. 2013

Grænfáninn á Sunnuhvoli

Leikskólinn Sunnuhvoll fékk Grænfánann afhentan í annað sinn nú nýlega.
  • Séð yfir Garðabæ

Leikskólinn Sunnuhvoll fékk Grænfánann afhentan í annað sinn nú nýlega. Fáninn var dreginn að húni og í framhaldi að því var slegið upp veislu til að fagna þessum áfanga.

Boðið var upp á pizzu og ís enda börnin búin að vera dugleg að flokka, tína rusl í kringum leikskólann sinn og endurvinna pappír svo eitthvað sé nefnt. 

Börnum, foreldrum og kennurum á leikskólanum Sunnuhvoli er óskað til hamingju með Grænfánann.