5. sep. 2013

Höfðingleg gjöf til Hofsstaðaskóla

Foreldrafélag Hofsstaðaskóla gaf skólanum í vikunni 9 iPad tæki sem munu nýtast vel í skólastarfinu
  • Séð yfir Garðabæ

Hofsstaðaskóla barst í vikunni höfðingleg gjöf. Gjöfin, sem er 9 iPad tæki, er frá foreldrafélagi skólans og segir Margrét Harðardóttir skólastjóri að stjórnendur skólans séu afar þakklátir  fyrir hana. "IPad tækin munu nýtast mjög vel í skólastarfinu sem námstæki. Þau gefa okkur betri möguleika á að þróa leiðir til að nýta forritin og snertitæknina til að efla námsgleði nemenda. Skólinn á í dag 30 iPad tæki. Fimm af tækjunum eru staðsett hjá yngstu nemendum skólans í 1. bekk, 6 tæki eru nýtt í sérkennslu og 19 tæki verða nýtt á öllum stigum skólans. Þá verða tækin stundum nýtt öll í einu þar sem um er að ræða svokölluð 1 á 1 verkefni eða að nemendur vinna í hópum með hvern IPad í tengslum við ákveðin verkefni." 

Foreldrafélag Hofsstaðaskóla hefur undanfarin ár staðið fyrir ýmsum viðburðum til að safna fé til tækjakaupa m.a. með bingói og laufabrauðssölu og hefur þegar gefið skólanum gagnvirka kennslutöflu.

Samstarf heimila og skóla er lykilatriði að farsælu skólastarfi. Foreldrafélag Hofsstaðaskóla er öflugur og sýnilegur bakhjarl skólans.