Þetta er hreiðrið hans Jesú
Hátíðir og hefðir eru ríkur þáttur í leikskólastarfi. Á aðventu er áhersla lögð á jólastemningu og undirbúningi fyrir jólin með söng, föndri, fræðslu og skemmtilegum uppákomum. Borin er virðing fyrir ólíkum uppruna barna og fjölbreytileika í menningu þeirra, en haldið í ákveðnar hefðir á aðventu.
Margt til gamans gert
Dagskrá leikskóla í Garðabæ er fjölbreytt og margt gert til að gera aðventuna sem skemmtilegasta. Sem dæmi má nefna piparkökubakstur, leikhús, heimsóknir í Sivertsenhúsið og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn að ógleymdum jólaböllum á öllum leikskólum.
Kirkjuferð á aðventu
Á síðustu dögum hafa leikskólabörn farið í sína árlegu heimsókn í kirkjuna. Sr Jóna Hrönn Bolladóttir og sr. Friðrik Hjartar hafa tekið á móti barnahópum í Garðakirkju ásamt Jóhanni Baldvinssyni organista. Úr kirkjunni hafa ómað jólasálmar og sr. Jóna Hrönn hefur sagt börnunum söguna um fæðingu Jesú. Börnin taka virkan þátt í frásögninni og þegar börnin voru spurð hvort þau vissu nafnið á jötunni heyrðist sagt „já þetta er hreiðrið hans Jesú“. Börnin hafa einnig tekið þátt í því að kveikja á aðventukransinum.
Rútuferðin til og frá kirkjunni hefur verið notuð til þess að skoða jólaljósin og hafa sumir leikskólar farið í kaffihús að lokinni aðventustund í kirkjunni. Kirkjuferðin er því ómissandi þáttur í hefðum leikskólabarna á aðventu.
Myndirnar eru teknar þegar börnin á leikskólanum Sjálandi heimsóttu Garðakirkju í vikunni.


