19. mar. 2004

Litla hryllingsbúðin frumsýnd í FG

Litla hryllingsbúðin frumsýnd í FG
  • Séð yfir Garðabæ

Það var mögnuð stemning í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í gær, 18. mars 2004, þegar Nemendafélag skólans frumsýndi söngleikinn Litlu hryllingsbúðina á sviði skólans.

Litla hryllingsbúðin fjallar um ungan mann, Baldur Snæ, sem vinnur í blómabúð og samstarfsfólk hans. Líf Baldurs er fremur fábrotið og lítið spennandi. Það á þó eftir að breytast rækilega eftir að hann finnur dularfulla plöntu sem hann tekur með sér í búðina.

Nemendur FG fara á kostum í hlutverkum sínum í Litlu hryllingsbúðinni hvort sem kemur að leik, söng eða dansi. Fjölmargir aðrir nemendur skólans koma að uppfærslunni en þeir sjá m.a. um sviðsmynd, búningahönnun, förðun og tæknimál.

Með aðalhlutverk fara Pétur Rúnar Heimisson (Baldur Snær), Alma Guðmundsdóttir (Auður), Hlynur Hallgrímsson (Markús) og Hrefna Bóel Sigurðardóttir (Auður 2) sem sést í hlutverki sínu á myndinni.

Leikstjóri sýningarinnar er Unnur Ösp Stefánsdóttir, danshöfundur er Selma Björnsdóttir, tónlistarstjóri er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og um ljósahönnun sér Magnús Helgi Kristjánsson.

Upplýsingar um uppfærsluna og næstu sýningar eru á vef Nemendafélagsins www.nffg.is.