15. maí 2013

Málþing um Búrfellshraun

Málþing tileinkað minningu Guðmundar Kjartanssonar jarðfræðings verður haldið þriðjudaginn 21. maí í Náttúrufræðistofnun Íslands við Urriðaholt í Garðabæ.
  • Séð yfir Garðabæ

Málþing tileinkað minningu Guðmundar Kjartanssonar jarðfræðings verður haldið þriðjudaginn 21. maí í Náttúrufræðistofnun Íslands við Urriðaholt í Garðabæ.

Síðasta rannsóknarverkefni Guðmundar var aldursgreining og kortlagning Búrfellshrauns sem er samheiti á mörgum hraunum í Garðabæ og Hafnarfirði og runnið hafa frá Búrfellsgíg til sjávar. Guðmundur lést árið 1972.

Á málþinginu verður fjallað um Guðmund og störf hans. Þá verður fjallað um Búrfellshraun frá ólíkum hliðum, m.a. um fornminjar og örnefni í hrauninu.

Málþingið verður frá kl. 13.15 til 16.15 og að því loknu verður farið að Bala, staðar á bæjamörkum Garðabæjar og Hafnarfirðar og neðan Hrafnistu, þar sem bæjarstjórar Garðabæjar og Hafnarfjarðar, kynna sameiginlegt verkefni.

Að þessu málþingi standa auk Garðabæjar og Hafnarfjarðarbæjar, Náttúrufræðistofnun Íslands og félagið Hraunavinir.

Dagskrá málþingsins.