10. maí 2013

Sögugöngur í Garðabæ

Laugardaginn 11. maí verður boðið upp á fjölskyldugöngu á Álftanesi þar sem gengið verður frá bókasafninu á Álftanesi að Jörva þar sem María B. Sveinsdóttir ábúandi tekur á móti hópnum og leiðir göngu um svæðið kringum Jörva og Skansinn.
  • Séð yfir Garðabæ

Laugardaginn 11. maí verður boðið upp á fjölskyldugöngu á Álftanesi þar sem gengið verður frá bókasafninu á Álftanesi að Jörva þar sem María B. Sveinsdóttir ábúandi tekur á móti hópnum og leiðir göngu um svæðið kringum Jörva og Skansinn.  Fjölskyldugangan er hluti af Sögugöngum Bókasafns Garðabæjar í samvinnu við menningar- og safnanefnd.  Einnig verður boðið upp á sögugöngu þriðjudaginn 14. maí að kvöldi til kl. 20 þar sem Anna Ólafsdóttir Björnsson leiðir göngu þar sem gengið verður um ,,Bakkana" á Álftanesi.

Sögugöngur Bókasafns Garðabæjar voru farnar í fyrsta sinn í maí árið 2012.  Þá var gengið um Túnin í Garðabæ undir leiðsögn Kristínar Helgu Gunnarsdóttur og upp að Vífilsstöðum þar sem hlýtt var á upplestur Einars Más Guðmundssonar  undir suðurvegg Vífilsstaðarspítala.  Þátttaka í þeim göngum var svo góð að ástæða þykir til að endurtaka þær, en að þessu sinni úti á Álftanesi.  Allir eru velkomnir með í göngu.

Laugardaginn 11. maí  kl. 11:00 - fjölskylduganga

Mæting í bókasafninu í Álftanesskóla kl. 11, Eyvindarstaðavegsmegin.  Sjá leiðarlýsingu neðar.   Gengið verður  frá bókasafninu að Jörva,  þar sem María B. Sveinsdóttir ábúandi  tekur á móti hópnum og leiðir göngu um svæðið kringum Jörva og Skansinn.  María er mjög vel kunnug þessu svæði og hefur frá mörgu skemmtilegu að segja.  Gangan tekur u.þ.b. klukkustund og eftir hana verður  boðið upp á hressingu á bókasafninu.  Létt ganga fyrir bæði börn og fullorðna.

Þriðjudaginn 14.  maí  kl. 20:00 - Anna Ólafsdóttir Björnsson leiðir kvöldgöngu á Álftanesi.

Mæting í Bókasafni Álftaness, í Álftanesskóla, Eyvindarstaðavegsmegin.Gengið verður frá bókasafninu  meðfram ,,Bökkunum" þar sem sjósókn á smærri bátum hefur verið stunduð frá landnámi til okkar daga. Þaðan liggur leiðin að Sviðholti, sem á sér merka sögu og þar var m.a. seinasta kúabúið á Álftanesi.  Komið verður við á Bessastaðagranda þar sem rifjuð verða upp kynni Álftnesinga af sjóræningjum og álfum og sagt frá Bessastaðaskóla og kennurunum þar.  Kaffi  í boði bókasafnsins eftir gönguna. 
 

Hvar er Bókasafn Álftaness ?

Bókasafnið er staðsett í Álftanesskóla við Eyvindarstaðaveg.  Ekið  er eftir Álftanesvegi  í gegnum hringtorg við Bessastaðaafleggja.  Þaðan er ekið  út úr hringtorginu eftir Norðurnesvegi og síðan beygt til vinstri inn Eyvindarstaðaveg.  Eyvindarstaðavegur er lokuð gata. Við enda hennar er stendur Álftanesskóli  og þar er inngangur í bókasafnið.