12. apr. 2013

"Little Talks" í Schoolovision

Lagið "Little Talks" með Garðabæjarhljómsveitinni Of Monsters and Men verður framlag Flataskóla í söngkeppninni schoolovision í ár.
  • Séð yfir Garðabæ

Lagið "Little Talks" með Garðabæjarhljómsveitinni Of Monsters and Men verður framlag Flataskóla í söngkeppninni schoolovision í ár. Það eru þrjár vaskar stúlkur úr 6. bekk, þær Sigurrós, Katharína og Birta sem flytja lagið.

Lagið var valið eftir forkeppni sem haldin var í skólanum undir nafninu Flatóvision. Það voru sex atriði sem kepptu um að verða framlag skólans í ár. Dómnefndin átti í talsverðum vanda við að velja siguratriðið en að lokum var það "Little Talks" með hlaut þann heiður.

Myndbandið um Flatóvision 2013 er nú á vef skólans og á YouTube.