Sumarstörf hjá Garðabæ
Umsóknarfrestur um sumarstörf rann út í vikunni og sóttu tæplega 450 ungmenni um vinnu.
Umsóknarfrestur um sumarstörf rann út í vikunni. Tæplega 450 ungmenni sóttu um vinnu í sumar.
Eins og fyrri ár fá umsækjendur sem uppfylla skilyrði um störfin og sóttu um vinnu á réttum tíma tilboð um starf hjá Garðabæ í sumar. Umsækjendum verður tilkynnt þetta í síðasta lagi í byrjun maí.
Búið er að opna fyrir umsóknir á biðlista og verður tekin ákvörðun um hvort biðlistaumsækjendur fái vinnu í maí.