14. mar. 2013

Foreldramorgnar á Álftanesi

Leikskólafulltrúi Garðabæjar heimsótti foreldra og börn í safnaðarheimilinu Brekkuskógum á Álftanesi sl. miðvikudag
  • Séð yfir Garðabæ

Leikskólafulltrúi Garðabæjar heimsótti foreldra og börn í safnaðarheimilinu Brekkuskógum á Álftanesi sl. miðvikudag en þar eru haldnir vikulegir foreldramorgnar á vegum kirkjunnar. 

Við þetta tækifæri kynnti leikskólafulltrúi þá kosti sem eru til staðar í Garðabæ varðandi daggæslu fyrir yngstu börnin og starf leikskóla í Garðabæ.

Umsjón með foreldramorgnum hefur Margrét Gunnarsdóttir. Þar gefst foreldrum ungra barna tækifæri til að kynnast, spjalla og miðla reynslu hver með öðrum. Um leið fá börnin tækifæri til að kynnast og leika við önnur börn.