29. nóv. 2012

Jóladagskrá á Garðatorgi 1. desember

Laugardaginn 1. desember nk. verða ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi. Jólatréð er gjöf frá Asker, vinabæ Garðabæjar í Noregi, og þetta er í 43. sinn sem Garðbæingar fá þessa vinasendingu þaðan. Athöfnin á laugardag hefst kl. 16 á Garðatorgi í miðbæjargarðinum.
  • Séð yfir Garðabæ

Laugardaginn 1. desember nk. verða ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi.  Jólatréð er gjöf frá Asker, vinabæ Garðabæjar í Noregi, og þetta er í 43. sinn sem Garðbæingar fá þessa vinasendingu þaðan.  Á meðfylgjandi mynd með fréttinni má sjá starfsmenn setja upp ljósin á jólatrénu og fara yfir ljósabúnaðinn.

Athöfnin á laugardag hefst  kl. 16 á Garðatorgi í miðbæjargarðinum. Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar leikur fyrir gesti og Halldóra Ingibergsdóttir varaformaður Norræna félagsins í Garðabæ, býður gesti velkomna. Sendiherra Noregs á Íslandi Dag Vernø Holter afhendir tréð fyrir hönd Asker og Áslaug Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar, veitir trénu viðtöku. Skólabörn úr Barnaskóla Hjallastefnunnar syngja nokkur lög fyrir viðstadda og að lokum koma jólasveinar til byggða og flytja jólalög. 

Barnaleikrit og markaður

Ýmislegt verður einnig um að vera fyrr um daginn í miðbæ Garðabæjar.  Að venju er leiksýning í Bókasafni Garðabæjar,  sem að þessu sinni hefst kl. 15 þegar barnaleikritið ,, Sigga og Skessan í jólaskapi“ verður sýnt.  Leiksýningin verður haldin á efri hæð safnsins að Garðatorgi 7. 

Í göngugötunni á Garðatorgi verður  jólamarkaður frá kl. 11-17.  Það er blómabúðin á Garðatorgi sem hefur umsjón með markaðnum sem verður einnig á hverjum föstudegi og laugardegi fram að jólum.  Kvennakór Garðabæjar tekur nokkur jólalög í göngugötunni kl. 15.30 þennan dag. Félagið Gróska sem eru samtök myndlistarmanna og áhugafólks um myndlist í Garðabæ og á Álftanesi ætlar að halda listaverkamarkað í Gróskusalnum á Garðatorgi. 

Opið hús í Hönnunarsafni Íslands

 
Í tilefni dagsins verður ókeypis aðgangur í Hönnunarsafn Íslands á laugardeginum.  Hönnunarsafnið er staðsett við Garðatorg og þar stendur nú yfir áhugaverð yfirlitssýning á verkum grafíska hönnuðarins Gísla B. 

Allir eru velkomnir á Garðatorgið til að taka þátt í jóladagskránni.