23. okt. 2012

Opið hús um sameiningarmál

Bæjarstjórar Garðabæjar og Álftaness og bæjarfulltrúar frá sveitarfélögunum tveimur verða til skrafs og ráðagerða á Opnu húsi um sameiningarmálin í Flataskóla, miðvikudaginn 17. október kl. 17.30-19.
  • Séð yfir Garðabæ

Bæjarstjórar Garðabæjar og Álftaness og bæjarfulltrúar frá sveitarfélögunum tveimur verða til skrafs og ráðagerða á Opnu húsi um sameiningarmálin í Flataskóla, miðvikudaginn 17. október kl. 17.30-19.

Á Opna húsinu verður boðið upp á stutta kynningu um sameiningarmálin en einnig verður hægt að koma við og kynna sér málin með spjalli við bæjarstjóra og bæjarfulltrúa. Sýndir verða skipulagsuppdrættir og myndir frá sveitarfélögunum.

Tónlistaratriði - kaffi og kleinur.

Einnig verður Opið hús í Íþróttamiðstöðinni á Álftanesi þriðjudaginn 16. október kl. 17.30.-19.

 Allir velkomnir

Auglýsing um Opið hús