29. ágú. 2012

Stjarnan bikarmeistari

Stjarnan hlaut sinn fyrsta bikarmeistaratitil í knattspyrnu sl. laugardag þegar Stjörnustelpur sigruðu Val 1-0 í úrslitaleik um titilinn. Fyrirliði Stjörnunnar Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir tryggði Stjörnunni sigurinn með glæsilegu marki á 83. mínútu leiksins.
  • Séð yfir Garðabæ

Stjarnan hlaut sinn fyrsta bikarmeistaratitil í knattspyrnu sl. laugardag þegar Stjörnustelpur sigruðu Val 1-0 í úrslitaleik um titilinn. Fyrirliði Stjörnunnar Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir tryggði Stjörnunni sigurinn með glæsilegu marki á 83. mínútu leiksins.

Lýsingin á leiknum hér fyrir neðan er af vefnum www.fotbolti.net

Það var sögulegur dagur fyrir Stjörnuna á laugardag en Stjörnustúlkur tryggðu sér bikarmeistaratitilinn með 1-0 sigri á Val. Þetta er fyrsti bikarmeistaratitillinn í sögu félagsins og verður að segja að hann hafi verið vel verðskuldaður. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað ef undan er skilið stórglæsilegt sigurmark fyrirliðans Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur en bæði lið voru mætt til að berjast og selja sig dýrt.

Stjarnan fékk tvö virkilega góð færi í upphafi leiks. Fyrst slapp Inga Birna Friðjónsdóttir inn fyrir varnarlínu Vals en Brett Maron í markinu sá við hana. Stuttu síðar komst Harpa Þorsteinsdóttir ein í gegn en aftur varði Maron og hélt Valsstúlkum inni í leiknum.

Annars var lítið um opin færi í leiknum. Stjarnan reyndi mikið að setja boltann aftur fyrir varnarlínu Vals en tókst ekki að skapa sér afgerandi færi. Bæði lið reyndu skot utan af velli en flest þeirra voru hættulaus. Besta tækifæri Vals í leiknum kom þó úr einu slíku þegar hægri bakvörðurinn Berglind Rós Ágústsdóttir átti hörkuskot utan af hægri kanti sem sleikti stöngina utanverða.

Stjarnan hélt undirtökunum í síðari hálfleik án þess þó að skapa sér opin marktækifæri. Liðið fékk fjölmargar hornspyrnur sem nýttust illa og það sama má reyndar segja um Valsara þó hornin hafi verið færri þeim megin.

Það virtist allt ætla að stefna í framlengingu þegar Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, tók sig til og gerði út um leikinn. Markið kom á 83. mínútu en Gunnhildur fékk þá boltann utan við hægra vítateigshornið og lét vaða í fjærhornið. Virkilega flott mark og viðeigandi hjá fyrirliðanum að taka af skarið.

1-0 yfir sigldu Stjörnustúlkur sigrinum í höfn og lönduðu fyrsta bikarmeistaratitli í sögu félagsins.

Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina.

Myndina tók Ingunn Hallgrímsdóttir, fyrir www.fotbolti.net .

Fleiri myndir af leiknum eru á fotbolti.net