24. ágú. 2012

Opið á sunnudag í Króki

Sunnudaginn 26. ágúst nk. er opið frá kl. 13-17 í Króki og er það síðasta sunnudagsopnunin í sumar. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjargar Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó í Króki til ársins 1985.
  • Séð yfir Garðabæ

Bærinn Krókur á Garðaholti í Garðabæ hefur verið opinn á sunnudögum í sumar.  Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923.  Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjargar Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó í Króki til ársins 1985.  Afkomendur Þorbjargar og Vilmundar gáfu Garðabæ húsin í Króki með því skilyrði að bærinn yrði endurbyggður.  Undanfarin ár hefur verið opið að sumri til í Króki fyrir almenning og skólahópar jafnt sem aðrir hópar hafa heimsótt bæinn yfir vetrartímann.  Í Króki er einnig herbergi sem hefur nýtt sem vinnuaðstaða fyrir listamenn á veturna. Nýverið var auglýst eftir umsóknum listamanna/fræðimanna um vinnuaðstöðu næsta vetur, sjá hér.  

 

Opið hús á sunnudaginn frá 13-17

Sunnudaginn 26. ágúst nk. er opið frá kl. 13-17 í Króki og er það síðasta sunnudagsopnunin í sumar.  Bílastæði eru hjá samkomuhúsinu á Garðaholti. Krókur er staðsettur ská á móti samkomuhúsinu og stutt frá Garðakirkju.  Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir í heimsókn.