Sumarstörfum að ljúka
Nú styttist í starfslok ungmenna í sumarátaki hjá Garðabæ
Nú styttist í starfslok ungmenna í sumarátaki hjá Garðabæ. Í dag, 19. júlí, er lokadagur hjá 17 ára ungmennum en þau hafa starfað í sumar í fimm hópum undir leiðsögn flokksstjóra. Þeir sem eru 18 ára og eldri ljúka störfum 26. júlí.
Þessi frábæru ungmenni hafa skilað af sér miklum verðmætum í formi útivistarstíga og almennri umhirðu í bæjarlandinu.
Garðabær þakkar unga fólkinu fyrir frábær störf í sumar.