Sumarlestur bókasafnsins
Sumarlestur Bókasafns Garðabæjar er í fullum gangi þessa dagana. Við skráningu fá börnin afhenta lestrardagbók til að skrá í bækur og blaðsíðufjölda sem þau lesa yfir sumarið. Lestrardagbókinni á að skila til bókasafnsins eigi síðar enn 15. ágúst. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu safnsins og safnið heldur einnig úti skemmtilegri fésbókarsíðu með ýmsum fróðleik. Margir gera sér dagamun og heimsækja safnið yfir sumartímann og þar á meðal voru hressir krakkar á leikjanámskeiði Stjörnunnar sem sjá má á myndinni sem fylgir fréttinni.
Uppskeruhátíð í lok sumars
Uppskeruhátið verður haldin 20. ágúst á safninu og verður hún sérstaklega glæsileg með skemmtiatriðum og grillveislu í tilefni þess að í ár eru 10 ár síðan sumarlestur bókasafnsins hóf göngu sína.