9. júl. 2012

Opið hús í Króki í sumar

Bærinn Krókur á Garðaholti er opinn á sunnudögum í sumar (júní - ágúst) frá kl. 13-17. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir
  • Séð yfir Garðabæ

Bærinn Krókur á Garðaholti er opinn á sunnudögum í sumar (júní - ágúst) frá kl. 13-17. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923.  Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjörgu Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó í Króki til ársins 1985. Í Króki er einnig herbergi sem hefur verið nýtt sem tímabundin vinnuaðstaða fyrir listamenn.


Tilvalið er að fara í göngutúr í sumar um Garðaholtið og koma við í Króki í leiðinni einnig er hægt að leggja bílum við samkomuhúsið á Garðaholti (Krókur er staðsettur ská á móti samkomuhúsinu).  Sjá nánari upplýsingar um Krók hér.   Allir eru velkomnir í heimsókn í Krók á sunnudögum og aðgangur er ókeypis.