2. mar. 2012

Hús til leigu fyrir dagforeldra

Garðabær auglýsir húsið Holtsbúð 85 til leigu fyrir dagforeldra.
  • Séð yfir Garðabæ

Íbúðarhúsið Holtsbúð 85 er til leigu fyrir dagforeldra í Garðabæ. Um er að ræða 195 fermetra einbýli sem gæti verið heppilegt fyrir tvo dagforeldra. Húsnæðið verður eingöngu leigt þeim sem hyggjast nýta húsnæðið til daggæslu barna að uppfylltum skilyrðum Garðabæjar.


Íbúðarhúsið stendur á 968 fermetra lóð sem leigutaka er heimilt að nýta.


Áhugasamir geta skilað inn tilboði í leigufjárhæð, upplýsingar um menntun og fyrri störf ásamt greinargerð um helstu áherslur í fyrirhugaðri starfsemi fyrir 16. mars nk.

Sjá nánar í auglýsingu.