10. jún. 2022

Ný bæjarstjórn tekin til starfa

Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar Garðabæjar var haldinn 2. júní sl. Á þessum fyrsta fundi var Sigríður Hulda Jónsdóttir (D) kosin forseti bæjarstjórnar, Guðfinnur Sigurvinsson (D) var kosinn fyrsti varaforseti bæjarstjórnar og Ingvar Arnarsson (G) var kosinn annar varaforseti bæjarstjórnar.

  • Ný bæjarstjórn Garðabæjar
    Ný bæjarstjórn Garðabæjar 2022-2026 kom saman til fyrsta fundar 2. júní sl.

Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar Garðabæjar var haldinn 2. júní sl. 

Gunnar Valur Gíslason, sem er aldursforseti þeirra sem eiga að baki lengsta setu í bæjarstjórn, setti fundinn og bauð bæjarfulltrúa velkomna til fyrsta fundar nýkjörinnar bæjarstjórnar Garðabæjar fyrir kjörtímabilið 2022 - 2026 og óskaði þeim til hamingju með kjör þeirra til bæjarstjórnar. Gunnar Valur færði jafnframt fyrrum bæjarfulltrúum þakkir fyrir þeirra störf í þágu samfélagsins og þakkaði þeim samstarfið.

Bæjarstjórn Garðabæjar 2022-2026 er skipuð 11 fulltrúum. Í kosningum í maí 2022 voru eftirtaldir fulltrúar kjörnir í bæjarstjórn:

Almar Guðmundsson (D)
Björg Fenger (D)
Sigríður Hulda Jónsdóttir (D)
Margrét Bjarnadóttir (D)
Hrannar Bragi Eyjólfsson (D)
Gunnar Valur Gíslason (D)
Guðfinnur Sigurvinsson (D)
Þorbjörg Þorvaldsdóttir (G)
Ingvar Arnarson (G)
Sara Dögg Svanhildardóttir (C)
Brynja Dan Gunnarsdóttir (B)

Á þessum fyrsta fundi var Sigríður Hulda Jónsdóttir (D) kosin forseti bæjarstjórnar, Guðfinnur Sigurvinsson (D) var kosinn fyrsti varaforseti bæjarstjórnar og Ingvar Arnarsson (G) var kosinn annar varaforseti bæjarstjórnar.  Einnig var kosið í fastanefndir og ýmsar samstarfsnefndir.  Upplýsingar um nefndaskipan má sjá hér á vef Garðabæjar. 

Bæjarstjórnarfundir opnir almenningi

Bæjarstjórn fer með stjórn bæjarins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga. Hún fer með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarins, að svo miklu leyti sem hún hefur ekki falið hana öðrum. Á meðal annarra verkefna er kosning í ráð og nefndir á vegum bæjarstjórnar, yfirstjórn á fjárreiðum bæjarins, gerð samþykkta og ákvörðun gjalda, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.

Fundir bæjarstjórnar Garðabæjar eru fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar og hefjast kl. 17.
Fundir bæjarstjórnar eru haldnir í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar á Garðatorgi 7.

Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir og eru þeir jafnframt í beinni útsendingu á vef Garðabæjar. 

Fundargerðir bæjarstjórnar eru birtar á vef Garðabæjar daginn eftir fund.

Upptökur (myndupptökur og eldri hljóðupptökur) af fundum bæjarstjórnar má sjá hér.