10. nóv. 2025

Nýir og betrumbættir stígar meðfram Hafnarfjarðarvegi

Framkvæmdir á stígum meðfram Hafnarfjarðarvegi, við Súlunes og Hegranes, hefjast á næstu misserum.

  • Nýju stígarnir verða sambærilegir þeim sem er við undirgöngin við Arnarnesbrú.

Á næstu dögum hefjast framkvæmdir á stígum meðfram Hafnarfjarðarvegi, við Súlunes og Hegranes. Framkvæmdaverkefnið er á vegum Betri samgangna.

Núverandi stígar meðfram Hafnarfjarðvegi verða endurnýjaðir að hluta og nýr stígur lagður samhliða þar sem aðskildar leiðir verða fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Stígarnir verða sambærilegir þeim sem er við undirgöngin við Arnarnesbrú.

Samtímis verða sett upp ný skilti og lýsing verður endurnýjuð við stígana. Framkvæmdin mun þannig stuðla að auknu öryggi þeirra sem nota stígana.

Fyrsti áfangi verður á kaflanum við Hegranes og Súlunes, í framhaldinu verður haldið áfram meðfram Hafnarfjarðvegi inn í Garðabæ. Gert er ráð fyrir að fyrsti áfanginn verði klár í febrúar/mars 2026.

Á meðan á lokunum stendur vegna framkvæmda verður hjólandi og gangandi umferð beint um Súlunes. Sjá meðfylgjandi teikningar sem sýna hjáleiðir.

Image009Image010