31. ágú. 2021

Nýjar höfuðstöðvar Vegagerðarinnar í Garðabæ

Fimmtudaginn 26. ágúst sl. voru nýjar höfuðstöðvar Vegagerðarinnar við Suðurhraun 3 í Garðabæ teknar í notkun með formlegum hætti þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, klipptu á borða við inngang nýja hússins.

  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra afhjúpar vörðu Vegagerðarinnar fyrir utan nýju höfuðstöðvarnar í Garðabæ

Fimmtudaginn 26. ágúst sl. voru nýjar höfuðstöðvar Vegagerðarinnar við Suðurhraun 3 í Garðabæ teknar í notkun með formlegum hætti þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, klipptu á borða við inngang nýja hússins. Jafnframt afhjúpaði ráðherra vörðu Vegagerðarinnar sem var flutt með úr eldra húsnæði í Borgartúni og stendur nú endurhlaðin fyrir utan nýju húsakynnin.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fór yfir þýðingarmikið hlutverk Vegagerðarinnar í samfélaginu og óskaði starfsfólki Vegagerðarinnar góðs gengis á nýjum stað. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, flutti ávarp og sagði reynslu starfsmanna af hinu nýja húsnæði mjög góða og þegar hafa farið fram úr væntingum. Þá bauð Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar, Vegagerðina velkomna í Garðabæ og færði Vegagerðinni ritverkið Sögu Garðabæjar að gjöf.

Klippt á borða við nýju höfuðstöðvar Vegagerðarinnar í Garðabæ

Sameinuð starfsemi í Garðabæ

Starfsemi Vegagerðarinnar er nú sameinuð á einum stað í Garðabæ en áður var Vegagerðin á þremur stöðum í Borgartúni í Reykjavík, Vesturvör í Kópavogi og Hringhellu í Hafnarfirði.

Nýja húsið skiptist í 6.000 fermetra skrifstofu- og geymsluhúsnæði og 9.000 fermetra útisvæði. Í húsinu eru um 170 starfsstöðvar, 21 fundarherbergi af ýmsum stærðum og 10 minni næðisrými. Flutningur starfseminnar hefur staðið yfir í allt sumar.

Samkomulag um byggingu höfuðstöðvanna var undirritað í mars 2020, að undangengnu útboði. Reginn byggði húsnæðið og á það en Vegagerðin leigir til langs tíma.

Sjá einnig fréttir á vef samgönguráðuneytisins og á vef Vegagerðarinnar.