19. des. 2019

Nýta þarf hvatapeninga ársins fyrir áramót

Foreldrar/forráðamenn eru minntir á að nýta hvatapeninga ársins 2019 fyrir áramót. Hvatapeningar ársins 2019 eru 50.000 kr á barn.

  • Ásgarðslaug
    Ásgarðslaug

Foreldrar/forráðamenn eru minntir á að nýta hvatapeninga ársins 2019 fyrir áramót. Hvatapeningar ársins 2019 eru 50.000 krónur á barn. Öll börn á aldrinum 5-18 ára, með lögheimili í Garðabæ, fá hvatapeninga, þ.e. börn fædd á árunum 2001-2014.

Hvatapeninga 2019 er hægt að nýta vegna reikninga sem gefnir eru út á árinu 2018 og 2019.

Hvatapeningana er hægt að nýta til að lækka kostnað við skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf sem nær yfir 10 vikur að lágmarki. Ungmenni í þremur elstu árgöngunum, þ.e. þau sem eru fædd 2001, 2002 og 2003 geta fengið hvatapeninga greidda vegna kaupa á korti í líkamsræktarstöð. Hægt er að nýta hvatapeninga til þess að greiða niður tónlistarnám, bæði í Tónlistarskóla Garðabæjar og öðrum tónlistarskólum.

Hvatapeningar ársins 2019 renna út um áramótin. Nýjum hvatapeningum verður úthlutað í janúar. Þá verður hægt að nýta til að greiða niður reikninga sem gefnir eru út á árinu 2020.

Tvær leiðir til að nýta hvatapeninga

Auðveldasta leiðin til að nýta hvatapeninga er að nýta þá beint í gegnum þau félög sem eru tengd Nóra skráningarkerfinu. Hinn möguleikinn er að koma með reikning frá félaginu í þjónustuver Garðabæjar og fá hvatapeninga endurgreidda. 

Sjá líka upplýsingar um hvatapeninga hér.