28. des. 2020

Nýta þarf hvatapeninga ársins fyrir áramót

Foreldrar/forráðamenn eru minntir á að nýta hvatapeninga ársins 2020 fyrir áramót. Hvatapeningana er hægt að nýta til að lækka kostnað við skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf.

Foreldrar/forráðamenn eru minntir á að nýta hvatapeninga ársins 2020 fyrir áramót. Hvatapeningar ársins 2020 eru 50.000 krónur á barn. Öll börn á aldrinum 5-18 ára, með lögheimili í Garðabæ, fá hvatapeninga, þ.e. börn fædd á árunum 2002-2015.

Hvatapeninga 2020 er hægt að nýta vegna reikninga sem gefnir eru út á árinu 2019 og 2020.

Hvatapeningana er hægt að nýta til að lækka kostnað við skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf sem nær yfir 10 vikur að lágmarki. Ungmenni í þremur elstu árgöngunum, þ.e. þau sem eru fædd 2002, 2003 og 2004 geta fengið hvatapeninga greidda vegna kaupa á korti í líkamsræktarstöð. Hægt er að nýta hvatapeninga til þess að greiða niður tónlistarnám, bæði í Tónlistarskóla Garðabæjar og öðrum tónlistarskólum.

Hvatapeningar ársins 2020 renna út um áramótin. Nýjum hvatapeningum verður úthlutað í janúar. Þá verður hægt að nýta til að greiða niður reikninga sem gefnir eru út á árinu 2020.

Tvær leiðir til að nýta hvatapeninga

Auðveldasta leiðin til að nýta hvatapeninga er að nýta þá beint í gegnum þau félög sem eru tengd Nóra skráningarkerfinu. Hinn möguleikinn er að koma með reikning frá félaginu í þjónustuver Garðabæjar og fá hvatapeninga endurgreidda.

Sjá líka upplýsingar um hvatapeninga hér.