18. feb. 2026

Opið fyrir umsóknir í Vinnuskólann 2026

Umsóknir í Vinnuskóla Garðabæjar fara fram í gegnum Völu vinnuskóla.

  • Vinnuskóli 2019

Búið er að opna fyrir umsóknir í Vinnuskólann fyrir sumarið 2026.

Vinnuskóli Garðabæjar býður unglingum í 8., 9. og 10. bekk upp á fræðandi og uppbyggilega sumarvinnu í öruggu starfsumhverfi. Flest verkefni snúa að garðyrkju og umhirðu í bænum en eldri unglingar eiga möguleika á aðstoðarstarfi í leikskóla eða á sumarnámskeiðum.

Forráðafólk þarf að skrá ungmenni í Vinnuskólann og fara umsóknir í gegnum Völu vinnuskóla. Innskráning er með rafrænum skilríkjum og velja þarf Garðabæ sem sveitarfélag.

Allar nánari upplýsingar má finna hérna, m.a. upplýsingar um laun og vinnutíma.

Netfang: vinnuskolinn@gardabaer.is.
Símanúmer: 590-2575

Leitin að fallegustu lóðinni

Allir nemendur í 8., 9. og 10. bekk sem eiga lögheimili í Garðabæ eða eru í skólum bæjarins geta skráð sig í Vinnuskólann. Allir sem uppfylla þau skilyrði fá vinnu.