Opið hús á bæjarskrifstofum
Opið hús verður á bæjarskrifstofum Garðabæjar laugardaginn 4. maí kl. 13-15 í Ráðhúsi Garðabæjar, Garðatorgi 7.
Opið hús verður á bæjarskrifstofum Garðabæjar laugardaginn 4. maí kl. 13-15 í Ráðhúsi Garðabæjar, Garðatorgi 7.
Opið verður í þjónustuveri bæjarins á jarðhæð, á skrifstofum á 3. hæð og í Sveinatungu, nýrri fjölnota aðstöðu, á jarðhæð. Boðið verður upp á kaffi, djús og hressingu. Starfsfólk verður á staðnum og fræðir gesti um starfsemina og svarar spurningum.
Verið hjartanlega velkomin á bæjarskrifstofurnar!