7. jún. 2019

Opið hús í Króki á Garðaholti í sumar

Opið er í Króki kl. 13-17 alla sunnudaga í sumar og ókeypis inn.

  • Opið hús í Króki
    Burstabærinn Krókur á Garðaholti er opinn alla sunnudaga í sumar kl.11:30-15:30. Aðgangur er ókeypis.

Krókur á Garðaholti er lítill bárujárnsklæddur burstabær í eigu Garðabæjar. Krókur var endurbyggður úr torfbæ í nokkrum áföngum á fyrri hluta 20. aldar og er elsti hlutinn frá 1923. 

Opið á sunnudögum í sumar

Opið er í Króki kl. 13-17 alla sunnudaga í sumar og ókeypis inn. Safnvörður er á staðnum og veitir leiðsögn. Krókur er staðsettur stutt frá Garðakirkju í Garðahverfi við Garðaholt, á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar. Bílastæði eru við samkomuhúsið á Garðaholti.

Alþýðuheimili í Króki

Fyrstu árin bjó ekkjan Jóhanna Jóhannsdóttir í Króki ásamt sex börnum og Halldóru móður sinni. Krókur var síðan stækkaður árið 1934 þegar Þorbjörg Stefanía Guðjónsdóttir og Vilmundur Gíslason fluttu þangað með fjögur börn og móður Vilmundar, Guðrúnu Sveinsdóttur. Þorbjörg og Vilmundur voru síðustu ábúendur í Króki. Þau áttu kýr, hænsni og kindur og ræktuðu grænmeti. Auk þess unnu bæði úti og á meðan annaðist Guðrún börnin. Þorbjörg lifði mann sinn og bjó í Króki þangað til hún dó árið 1985. 

Ómetanlegt er að bæði híbýli og innbú eru varðveitt sem heild í Króki og þarna má sjá gott dæmi um húsakost og lifnaðarhætti alþýðufólks á fyrri hluta 20. aldar.