28. maí 2025

Opnun Gróskumessu á Garðatorgi

Sýningin Gróskumessa verður opnuð á laugardaginn, 31. maí, klukkan 14:00.

Gróska, samtök myndlistarmanna í Garðabæ, standa að sýningunni Gróskumessa sem fer fram á Garðatorgi og í Gróskusalnum á Garðatorgi.

59 listamenn sýna um 125 listaverk og einkennir mikil fjölbreytni sýninguna. Listamennirnir eru félagar í myndlistarsamtökum á suðvesturhorni landsins og ýmsir rekstraraðilar á torginu taka þátt með því að sýna myndlist og/eða veita afslátt í tilefni sýningarinnar.

Gróskumessa á Garðatorgi 2025 er tvískipt. Annars vegar er sýningun uppi í Gróskusalnum og hins vegar á göngugötunni á Garðatorgi. 

Torgið er opið á milli klukkan 08-19. Gróskusalurinn er opinn um helgar á milli klukkan 14-17 og virka daga á milli klukkan 15-18.

Sýningarvikuna eru ýmsir viðburðir í boði. Sjá nánar inni á Facebook-síðu Grósku.

Groska1