27. okt. 2021

Örugg búseta fyrir alla

Í dag fór af stað samstarfsverkefni um kortlagningu á fjölda einstaklinga sem búa í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Vefsíðan homesafety.is hefur verið sett í loftið sem hluti af kynningarefni þessa verkefnis og þar er hægt að nálgast upplýsingar á sex tungumálum.

  • Örugg búseta fyrir alla
    Kynning á verkefninu Örugg búseta fyrir alla

Í dag fór af stað samstarfsverkefni um kortlagningu á fjölda einstaklinga sem búa í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og stjórnarformaður SHS (Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins), Halla Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri ASÍ (Alþýðusambands Íslands) og Anna Guðmunda Ingvarsdóttir aðstoðarforstjóri HMS (Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar), kynntu verkefnið á blaðamannafundi í morgun.

Í kjölfar brunans við Bræðraborgarstíg í fyrra þar sem þrjú létust var Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) að beiðni félags- og barnamálaráðherra falið að vinna að tillögum til úrbóta á brunavörnum í húsnæði þar sem fólk hefur búsetu. Í því skyni stofnaði HMS samráðsvettvang sem lagði fram þrettán úrbótatillögur, þar á meðal að kortleggja hversu margir einstaklingar búa í atvinnuhúsnæði, ásamt því að safna upplýsingum um ástand brunavarna og félagslegar aðstæður íbúa sem nú er verið að setja í framkvæmd. Ákveðið var að hefja þessa vinnu á höfuðborgarsvæðinu og þróa aðferðarfræði sem mun nýtast á landsbyggðinni.

Kortlagning á umfangi og fjölda einstaklinga sem býr í atvinnuhúsnæði

„Í þessum áfanga er markmiðið að ná utan um umfangið og fjölda einstaklinga sem býr í atvinnuhúsnæði. Í kjölfarið á þeirri vinnu verður svo skoðað hvaða úrbætur þarf að ráðast í til að skapa öruggari húsnæðisaðstæður fyrir íbúa. Kortlagningin skapar grundvöll fyrir stjórnvöld til að ráðast í nauðsynlegar úrbætur og koma í veg fyrir hörmulega atburði eins og áttu sér stað á Bræðraborgarstíg“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var falið að leiða verkefnið í nánu samstarfi við HMS, Alþýðusamband Íslands og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Áætlað er að kortlagningin muni taka um þrjá mánuði. Í því felst að hópur eftirlitsfulltrúa heimsækir atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og ræðir við einstaklinga sem þar eru búsettir um ástand brunavarna og félagslegar aðstæður þeirra. Upplýsingar verða ópersónugreinanlegar.

Vefsíðan homesafety.is hefur verið sett í loftið sem hluti af kynningarefni þessa verkefnis og þar er hægt að nálgast upplýsingar á sex tungumálum.