3. sep. 2018

Plastlaus september

Plastlaus september er árvekniátak sem ætlað er að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti. Garðabær er einn af styrktaraðilum átaksins og eru Garðbæingar hvattir til að taka þátt í Plastlausum september sem vonandi leiðir til minni plastnotkunar til frambúðar. 

  • Plastlaus september

Af hverju eigum við að sleppa plasti?

Plast endist í þúsundir ára og er því afar slæmur kostur fyrir einnota notkun. Plast brotnar niður á mjög löngum tíma og þá í örplast sem ekki er betra fyrir umhverfið.

Plast er eingöngu hægt að endurvinna í annað plast af lélegri gæðum. Allt plast sem við notum og fer ekki til endurvinnslu, safnast fyrir á urðunarstöðum eða í nátturunni og veldur þar skaða um ókomna tíð.  Plast endar allt of oft í náttúrunni, og þá sérstaklega í ám, vötnum og sjó. Plast dregur til sín ýmis mengunarefni og þegar það endar í vef lífvera geta efnin þar með endað í fæðu okkar. Mjúkplast inniheldur stundum hormónaraskandi efni (t.d. þalöt) sem eru skaðleg mannfólki.

Plast í poka

Eitt verkefnið í átakinu Plastlaus september er að flokka plast og skila því endurvinnslutunnu. Íbúar í Garðabæ geta sett allt plast saman í lokuðum plastpoka beint í gráu sorptunnuna (orkutunnuna).  Plastpokarnir eru flokkaðir sérstaklega frá öðru rusli og þeim komið til endurvinnslu. Markmiðið er að draga úr urðun plasts og nýta betur hráefni í plastinu. 

Plast í poka -hvernig geta Garðbæingar flokkað plast?

Hér er hægt að skrá sig til þátttöku í plastlausum september.