23. maí 2019

Rafrænar kosningar hafnar

Rafrænar kosningar í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær eru hafnar og standa yfir til 3. júní. 27 verkefnum hefur verið stillt upp á rafrænan kjörseðil og geta íbúar kosið hér.

  • Betri Garðabær!
    Betri Garðabær!

Rafrænar kosningar í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær eru hafnar og standa yfir til 3. júní. 27 verkefnum hefur verið stillt upp á rafrænan kjörseðil og geta íbúar kosið hér.

Matshópur skipaður starfsmönnum tækni- og umhverfissviðs fór yfir allar hugmyndir sem bárust í hugmyndasöfnun verkefnisins, mat þær og leitaði til annarra sviða og ráðgjafa. Hugmyndir voru metnar út frá þeim skilyrðum sem sett voru í upphafi. 

Hér má skoða afstöðu matshóps gagnvart öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun verkefnisins.

Íbúar sem verða 15 ára á kosningaárinu (fæddir 2004) og eldri, með skráð lögheimili í Garðabæ fá nú tækifæri til að ráðstafa allt að 100 milljónum í verkefni sem þeir vilja sjá framkvæmd í sveitarfélaginu næstu tvö árin.

Kjósendum er boðið upp á að hjartamerkja eitt verkefni sem gefur því aukaatkvæði. Þá er mögulegt að greiða atkvæði oftar en einu sinni, en það er nýjasta atkvæðið sem gildir.

Á kosningavefnum auðkennir notandi sig með öruggum hætti (með Íslykli eða rafrænum skilríkjum) en atkvæði er dulkóðað. Þannig er aldrei hægt að tengja atkvæði við einstaklinga. Hægt er að fá aðstoð við notkun á kosningavefnum í þjónustuveri Garðabæjar og í Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi 7 þar sem tölvur eru á staðnum.

Hugmyndir íbúa nýtast áfram

Þess má geta að fjölmargar góðar hugmyndir bárust í hugmyndasöfnun verkefnisins og þó þær falli ekki allar undir skilyrði Betri Garðabæjar lifa þær áfram og nýtast í önnur verkefni á vegum bæjarins eða fara beint í framkvæmd. Þannig verður hverju sviði og forstöðumönnum sendar þær hugmyndir sem tilheyra þeim til frekari skoðunar og einhverjum hugmyndum verður vísað beint til umfjöllunar í fastanefndum bæjarins.