20. maí 2019

Rafrænar kosningar í Betri Garðabæ

Rafrænar kosningar í Betri Garðabæ hefjast 23. maí og standa yfir til 3. júní. Íbúar sem verða 15 ára á kosningaárinu og eldri, með skráð lögheimili í Garðabæ fá þar tækifæri til að ráðstafa allt að 100 milljónum í verkefni sem þeir vilja sjá framkvæmd í sveitarfélaginu næstu tvö árin. 

  • Betri Garðabær!
    Betri Garðabær!

Hugmyndasöfnun í lýðræðisverkefninu Betri Garðabæ gekk vonum framar dagana 14. mars til 1. apríl sl. Alls bárust 304 hugmyndir frá íbúum og yfir 1000 einstaklingar skráðu sig inn á hugmyndasöfnunarvefinn til að setja inn hugmynd, skoða, líka við eða skrifa rök með eða á móti.

Matshópur skipaður starfsmönnum tækni- og umhverfissviðs fór yfir hugmyndirnar, mat þær og leitaði til annarra sviða og ráðgjafa. Hugmyndir voru metnar út frá þeim skilyrðum sem sett voru í upphafi og að lokum stóðu eftir 27 hugmyndir sem stillt var upp á rafrænan kjörseðil.

Rafrænar kosningar hefjast 23. maí og standa yfir til 3. júní 

 

  • 27 verkefni á rafrænum kjörseðli
  • Íbúar sem verða 15 ára á kosningaárinu (fæddir 2004) og eldri, með skráð lögheimili í Garðabæ fá þar tækifæri til að ráðstafa allt að 100 milljónum í verkefni sem þeir vilja sjá framkvæmd í sveitarfélaginu næstu tvö árin. 
  • Kjósendum er boðið upp á að hjartamerkja eitt verkefni sem gefur því aukaatkvæði. 
  • Þá er mögulegt að greiða atkvæði oftar en einu sinni, en það er nýjasta atkvæðið sem gildir.

 

Valið fer fram á sérstöku vefsvæði sem opnar 23. maí nk. og verður aðgengilegt hér á vef Garðabæjar. Þar auðkennir notandi sig með öruggum hætti (með Íslykli eða rafrænum skilríkjum) en atkvæði er dulkóðað. Þannig er aldrei hægt að tengja atkvæði við einstaklinga. Hægt er að fá aðstoð við notkun á kosningavefnum í þjónustuveri Garðabæjar og í Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi 7 þar sem tölvur eru á staðnum.

Hugmyndir íbúa nýtast áfram

Þess má geta að fjölmargar góðar hugmyndir bárust í hugmyndasöfnun verkefnisins og þó þær falli ekki allar undir skilyrði Betri Garðabæjar lifa þær áfram og nýtast í önnur verkefni á vegum bæjarins eða fara beint í framkvæmd. Þannig verður hverju sviði og forstöðumönnum sendar þær hugmyndir sem tilheyra þeim til frekari skoðunar og einhverjum hugmyndum verður vísað beint til umfjöllunar í fastanefndum bæjarins.

Öllum hugmyndum verður svarað og listi settur hér á vef Garðabæjar um niðurstöðu hverrar hugmyndar þegar kosningarnar hefjast. 

Hér má lesa nánar um lýðræðisverkefnið Betri Garðabæ.