30. des. 2025

Sækja jólatré 7. og 8. janúar

Venju samkvæmt mun Hjálparsveit skáta í Garðabæ hirða jólatré í Garðabæ dagana 7. og 8. janúar.

  • Sækja jólatré 7. og 8. janúar
    Venju samkvæmt mun Hjálparsveit skáta í Garðabæ hirða jólatré í bænum 7. og 8. janúar.

Ef veður leyfir verður Hjálparsveit skáta Garðabæ á ferðinni miðvikudaginn 7. janúar og fimmtudaginn 8. janúar og sækir lifandi jólatré sem þjónað hafa tilgangi sínum.

Íbúar eru beðnir um að koma trjánum fyrir á augljósum en öruggum stað við lóðamörk og ganga vel frá þeim. Það auðveldar tiltektina.

Vinsamlegast athugið að íbúar geta einnig losað sig við jólatré á endurvinnslustöðum SORPU.