17. sep. 2019

Samgönguvika 16.-22. september

Garðabær tekur þátt líkt og fyrri ár í Samgönguviku sem verður haldin 16.-22. september nk. Fjölmargir áhugaverðir viðburðir verða haldnir á höfuðborgarsvæðinu þá daga, meðal annars í Garðabæ.

  • Hjólum til framtíðar
    Hjólum til framtíðar

Garðabær tekur þátt líkt og fyrri ár í Samgönguviku sem verður haldin 16.-22. september nk. Fjölmargir áhugaverðir viðburðir verða haldnir á höfuðborgarsvæðinu þá daga, meðal annars í Garðabæ þar sem hjólaráðstefnan Hjólum til framtíðar verður haldin föstudaginn 20. september nk. Þá bjóða Hjólafærni og LHM uppá rólega hjólaferð fimmtudaginn 19. sept kl. 18 frá Garðatorgi. Ætlunin er að skoða aðstæður fyrir hjólreiðar í Garðabæ og svo verður endað á veitingastað IKEA kl. 19.30. Árni Davíðsson leiðir hjólaferðina.

Garðbæingar eru hvattir til að kynna sér dagskrá Samgönguviku og fara út að hjóla, ganga eða hlaupa. Í leiðsagnarappinu Wappinu má finna fjölmargar skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir í Garðabæ. Leiðirnar eru með kortum, gps hnitum, ljósmyndum og upplýsingum á íslensku og ensku. Nánari upplýsingar um wappið fá finna hér.

Dagskrá Samgönguviku í Garðabæ:

16. september

Vakin athygli á nýrri hjólabraut í efri Lundum.

17. september

Viðgerðastandar fyrir reiðhjól hafa verið settir upp á Garðatorgi.

Vakin athygli á nýjum viðgerðarstöndum sem settir hafa verið upp fyrir reiðhjól á Garðatorgi, Ásgarðslaug og Álftaneslaug.

18. september

Lýðheilsuganga - Miðvikudaginn 18. september verður gengið á Álftanesi frá Kasthúsatjörn meðfram sjónum og umhverfis Bessastaðatjörn og sú ganga er einnig í samvinnu við SÍBS, Vesen og vergang og Wapp leiðsöguappið.

19. september

Hjólafærni og LHM bjóða uppá rólega hjólaferð fimmtudaginn 19. sept kl. 18 frá Garðatorgi. Ætlunin er að skoða aðstæður fyrir hjólreiðar í Garðabæ og endum svo á veitingastað IKEA kL. 19.30. Árni Davíðsson leiðir hjólaferðina.

20. september

Föstudaginn 20. september 2019 munu Hjólafærni og Landsamtök hjólreiðamanna halda níundu ráðstefnu sína undir heitinu Hjólum til framtíðar. Meginþema ráðstefnunnar í ár er Göngum ‘etta. Þó það sé frábært að hjóla er ekkert sem jafnast á við að ganga til samgangna – en það hefur eiginlega alveg orðið út undan í hugsuninni um fjölbreyttar ferðavenjur. Sjá dagskrá á heimasíðu ráðstefnunnar Hjólum til framtíðar.

22. september

Bíllausi dagurinn er haldinn sunnudaginn 22. september. Markmið dagsins er að hvetja til notkunar á öðrum ferðamátum en einkabílnum og verður frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu þennan dag.

Samtök um bíllausan lífstíl og Ungir umhverfissinnar standa að skipulagi að bíllausu göngunni (Reykjavík Mobility Parade) sem er fjölskylduviðburður og skrúðganga fyrir fjölbreyttan ferðamáta og eru t.a.m. gangandi, hlaupandi, hlaupabretti, hjólaskautar, hjól, rafhjól, rafhlaupahjól, nytjahjól, burðarhjól og létt bifhjól innilega velkomin.

Donkey Republic og hin íslenska rafhlaupahjólaleiga Hopp munu kynna ný hjól og bjóða þátttakendum að notast við þau í Bíllausu göngunni. Hægt verður að leigja Hopp og Donkey hjóla á upphafsstað kl. 12:30. Fyrstir koma fyrstir fá!