11. des. 2020

Samkeppni um nýjan leikskóla í Urriðaholti

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti í haust að efna til samkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um hönnun nýs leikskóla í Urriðaholti. Dómnefnd hefur nýverið tekið til starfa og fyrsta verk er að semja samkeppnislýsingu.

  • Leikskólalóð í Urriðaholti
    Fyrirhuguð leikskólalóð í Urriðaholti (mynd tekin 2018 fengin af vef Urriðaholts)

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti í haust að efna til samkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um hönnun nýs leikskóla í Urriðaholti. Urriðaholt er eitt nýjasta hverfi Garðabæjar þar sem íbúðabyggð er í örum vexti. Hátt í 2500 manns búa nú í hverfinu og gert ráð fyrir að allt að 4500 íbúum í Urriðaholti þegar það verður fullbyggt. Í hverfinu er Urriðaholtsskóli, samrekinn leik- og grunnskóli, með hátt í 160 börn á leikskólaaldri og nú þegar er ljóst að hefja þarf uppbyggingu nýs leikskóla í hverfinu í takt við íbúafjölgun.
Markmið Garðabæjar er að bjóða börnum dvöl í leikskóla þegar þau ná 12 mánaða aldri og er sveitarfélagið stöðugt að færast nær því markmiði. Öll börn fædd 2019 fengu boð um dvöl í leikskóla í haust og líklegt er að hægt verði að innrita einhver börn úr 2020 árganginum eftir áramót.

Samkeppnislýsing í mótun

Í deiliskipulagi Urriðaholts er gert ráð fyrir leikskóla á lóð við Holtsveg neðan götu sem opnast út að grænu svæði sem liggur frá efri hluta holtsins niður í átt að Kauptúni. Áætlað er að nýi leikskólinn í Urriðaholti verði 6 deilda leikskóli fyrir allt að 120 börn frá 1 árs aldri.

Fimm manna dómnefnd hefur nýverið tekið til starfa og fyrsta verk er að semja samkeppnislýsingu áður en samkeppnin um hönnun leikskólans verður auglýst á næstunni. Í samkeppnislýsingu sem er í mótun er m.a. farið yfir tæknileg atriði og lýsingar en einnig helstu áhersluatriði dómnefndar við mat á úrlausnum keppenda. Það geta verið atriði eins og heildarlausn og hugmyndafræði, byggingarlist í húsnæði og hönnun útisvæðis og umhverfis, sjálfbærni og kostnaðaraðgáts, hvernig skólinn og umhverfið sé hannað og uppfylli sem best væntingar til leiks, náms, velferðar og aukins þroska barna.

Áhugasamir sem vilja koma hugmyndum á framfæri við dómnefndina á meðan gerð samkeppnislýsingar stendur yfir í desember geta haft samband við formann dómnefndarinnar, Áslaugu Huldu Jónsdóttur, í netfangi aslaug.hulda.jonsdottir@gardabaer.is

Í dómnefndinni sitja fyrir hönd Garðabæjar Áslaug Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs Garðabæjar sem er jafnframt formaður dómnefndarinnar, Hrefna Gunnarsdóttir, deildarstjóri í Urriðaholtsskóla og Kristjana Fjóla Sigursteinsdóttir, formaður leikskólanefndar Garðabæjar. Freyr Frostason arkitekt og Sigurður Einarsson arkitekt sitja í dómnefndinni fyrir hönd Arkitektafélag Íslands. Ritari dómnefndarinnar er Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri Garðabæjar, og trúnaðarmaður er Helga Guðjónsdóttir hjá Arkitektafélagi Íslands.

Stefnt er að því að auglýsa samkeppnina í byrjun næsta árs og að niðurstöður liggi fyrir fljótlega eftir páska.

Umhverfisvænt hverfi í sókn

Í uppbyggingu Urriðaholts hefur verið mikil áhersla á að byggðin sé umhverfisvæn og í góðum tengslum við náttúruna í kring. Stefnt er að því að nýi leikskólinn í Urriðaholti verði umhverfisvottuð bygging.

Urriðaholt var fyrsta hverfið á Íslandi til að fá vistvottun skipulags samkvæmt vottunarkerfi ,,BREEAM Communities“ sem er ætlað að tryggja lífsgæði og umhverfisvernd með vistvænu skipulagi byggðarinnar. Sjálfbærar ofanvatnslausnir eru í hverfinu sem eru fyrstu sinnar tegundar í íbúabyggð á landinu. Þó að stutt sé í náttúruna úr Urriðaholti liggur hverfið vel við í góðar samgönguæðar þar sem stutt er í Reykjanesbrautina. Í haust hóf Strætó göngu sína í Urriðaholtið með hringleið um hverfið að Vífilsstaðavegi, fram hjá Garðatorgi og að Ásgarði þar sem eru góðar tengingar í aðrar strætóleiðir.

Kort af Urriðaholti Kort fengið af vef Urriðaholts.