Samkomulag um nýtt hjúkrunarheimili við Vetrarmýri undirritað
„Þetta er afar gleðilegur áfangi,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar um nýtt hjúkrunarheimili með 100 hjúkrunarrýmum sem áformað er að opna í Vetrarmýri árið 2029.
-
„Þetta er afar gleðilegur áfangi,“ segir Almar Guðmundsson um nýtt hjúkrunarheimili með 100 hjúkrunarrýmum sem áformað er að opna í Vetrarmýri árið 2029.
Ráðgert er að reisa nýtt hjúkrunarheimili með 100 hjúkrunarrýmum við Vetrarmýri í Garðabæ. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, og Inga Sæland, sem fer með uppbyggingu hjúkrunarheimila undirrituðu samkomulag þessa efnis í dag.
Gert er ráð fyrir að byggingin verði ríflega 8.300 fermetrar og að hjúkrunarheimilið verði á efri hæðum hennar. Á jarðhæðinni er gert ráð fyrir þjónustumiðstöð.
Samkvæmt samkomulaginu útvegar Garðabær ríkinu lóðina endurgjaldslaust og bygging hússins verður boðin út. Ríkið mun leigja húsnæðið fyrir hjúkrunarheimilið með leigusamningi til 20-30 ára og Garðabær leigir jarðhæðina undir þjónustumiðstöðina. Ráðgert er að nýja hjúkrunarheimilið opni árið 2029.

„Þetta er afar gleðilegur áfangi. Garðabær og félags- og húsnæðismálaráðuneytið vinna saman að uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis sem mun rísa á þessum fallega stað sem Vetrarmýri er. Við í Garðabæ erum svo sannarlega tilbúin og vel undirbúin þannig að hægt verður að ráðast í uppbyggingu hratt og örugglega. Samþykkt deiliskipulag liggur fyrir og er næsta skref því að bjóða út húsnæðið undir hjúkrunarheimilið. Stefnt er að því að allt að 100 hjúkrunarrými verði á efri hæðum byggingarinnar en á jarðhæð verði eins konar þjónustumiðstöð. Við sjáum fyrir okkur lífsgæðakjarna sem mun ekki aðeins þjóna íbúum hjúkrunarheimilisins heldur einnig öllu eldra fólki í Garðabæ,“ segir Almar.
Þetta var mikil gleðistund en samhliða undirrituninni kynnti ráðherra nýja framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila um land allt til 2026-2030. „Stórsókn ríkisstjórnarinnar í uppbyggingu hjúkrunarheimila heldur áfram og það er mikið gleðiefni að nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili rísi í Garðabæ. Þar verður stutt út í náttúruna og ánægjulegt fyrir íbúana að á jarðhæðinni verður þjónustumiðstöð. Ég óska Garðbæingum og okkur öllum til hamingju,“ segir Inga Sæland.
Að undirritun lokinni leiddi Benedikt Sigurðsson prestur samsöng áður en boðið var upp á ljúffengar veitingar sem kokkarnir í Jónshúsi töfruðu fram.


