4. jún. 2025

Samningur Garðabæjar og KSÍ undirritaður í Miðgarði

Garðabær og Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) hafa gert með sér samningu um afnot KSÍ að fjölnota íþróttahúsinu Miðgarði. 

  • Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ við undirritun samningsins.

Garðabær og Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) hafa gert með sér samningu um afnot KSÍ að fjölnota íþróttahúsinu Miðgarði. Samningurinn var undirritaður í Miðgarði 27. maí og gildir hann frá 1. október 2025 til 3. mars 2028.

KSÍ fær til afnota aðstöðu á skilgreindum rýmum í Miðgarði á tilteknum tímum dagsins, en um er að ræða bæði knattspyrnusalinn og stoðrými, svo sem búningsaðstöðu, sjúkraherbergi, fundar- og mataraðstöðu, dómara- og þjálfaraherbergi og þrekæfingasvæði með gervigrasi.

Guðbjörg Linda Udengard sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs, Hrannar Bragi Eyjólfsson formaður íþrótta- og tómstundaráðs, Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar, Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ og Eysteinn Pétur Lárusson framkvæmdastjóri KSÍ.