23. jan. 2020

Samráðsgátt um lýðræðisstefnu Garðabæjar

Nú er hafin vinna við endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar. Núverandi stefna er frá árinu 2010 en Garðabær var fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að samþykkja lýðræðisstefnu.

  • Íbúafundir í Garðabæ eru yfirleitt vel sóttir.
    Íbúafundir í Garðabæ eru yfirleitt vel sóttir.

Nú er hafin vinna við endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar. Núverandi stefna er frá árinu 2010 en Garðabær var fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að samþykkja lýðræðisstefnu. Tilgangur með lýðræðisstefnunni er að auka möguleika íbúa á þátttöku í stefnumótun og ákvarðanatöku í bæjarfélaginu. Lýðræðisstefnu er ætlað að efla lýðræði á sveitarstjórnarstiginu og styrkja stjórnsýslu Garðabæjar til að efla íbúasamráð með fjölbreyttum hætti.

Fjölskylduráð Garðabæjar hefur samþykkt að fara af stað með endurskoðun á lýðræðisstefnunni og stefnt er að því að ný stefna verði kynnt og samþykkt með vorinu. 

Ýmsar birtingamyndir lýðræðis – upplýsingamiðlun og íbúafundir

Í anda lýðræðisstefnu Garðabæjar hefur verið lögð áhersla á að miðla upplýsingum um starfsemi bæjarins og málefni á vefsíðu bæjarins, gardabaer.is, og samfélagsmiðlum. Með því er verið að tryggja að Garðbæingar hafi ávallt sem bestar upplýsingar um allt sem varðar hagsmuni þeirra sem íbúa. Íbúar geta þannig fengið upplýsingar um með hvaða hætti þeir geta haft áhrif og haft aðgang að þátttöku í ákvörðunartöku í málum.

Á undanförnum árum hafa verið haldnir fjölmargir íbúafundir um m.a. skipulagsmál, menningarmál, skólamál, íþróttamál, umhverfismál, nágrannavörslu, fjárhagsáætlun, rekstrarúttekt o.fl. til að veita upplýsingar sem og að leita eftir skoðunum bæjarbúa um einstaka málefni. Lýðræðisverkefnið ,,Betri Garðabær” fór af stað vorið 2019 þar sem leitað var eftir hugmyndum bæjarbúa um framkvæmdir í nærumhverfi sem síðar var kosið um í rafrænum kosningum. Verkefni ,,Betri Garðabæjar” sem hlutu brautargengi í kosningunum eru nú ýmist tilbúin eða í hönnun og verða kláruð í sumar.

Hvernig vilt þú vera með í ráðum?

Hér er hægt að fara inn á samráðsgátt um lýðræðisstefnu Garðabæjar. Þar geta áhugasamir komið með ábendingar, tillögur og hugmyndir um hvað ætti að koma fram í nýrri lýðræðisstefnu og aðgerðaráætlun sem henni fylgir. Íbúar geta sent inn hugmyndir að leiðum sem þeir vilja fara til þess að hafa áhrif á ákvarðanatöku í bænum í mismunandi málaflokkum. Einnig er hægt að færa rök fyrir eða setja inn athugasemdir við hugmyndir sem búið er að setja inn í samráðgáttina.

Samráðsgáttin verður opin til 3. febrúar nk. Allar hugmyndir sem berast verða teknar til skoðunar við vinnslu lýðræðisstefnunnar. Drög að endurskoðaðri lýðræðisstefnu Garðabæjar verða birt á vef Garðabæjar með vorinu þar sem íbúar fá tækifæri til að koma með athugasemdir og ábendingar áður en endanleg útgáfa verður samþykkt. 

Ef notendur geta ekki notað samráðsgáttina af einhverjum ástæðum, er einnig hægt að senda ábendingar/hugmyndir á netfang Garðabæjar, gardabaer@gardabaer.is til 3. febrúar nk.