10. des. 2021

Samsstarfssamningur Garðabæjar og GÁ

Á dögunum gerðu Golfklúbbur Álftaness (GÁ) og Garðabær með sér samstarfssamning um að efla barna og unglingastarf í golfi í Garðabæ. 

Á dögunum gerðu Golfklúbbur Álftaness (GÁ) og Garðabær með sér samstarfssamning um að efla barna og unglingastarf í golfi í Garðabæ. Garðabær greiðir þannig GÁ árlega styrki sem skal nota í barna og unglingastarf.

Tilgangur samningsins er að efla barna og unglingastarf í golfi innan Garðabæjar með markvissu starfi GÁ á félagssvæði sínu. Auk þess að vinna að eflingu lýðheilsu í Garðabæ með starfi fyrir alla aldurshópa. 

Garðabær gerir þær kröfur að leiðbeinendur/þjálfarar séu með tilskilda þekkingu eða menntun í þeirri íþróttagrein sem stunduð er. Leiðbeinendur og þjálfarar þurfa að undirrita samning við félagið um að vera til fyrirmyndar í stundvísi, framkomu og annan hátt er að íþróttinni lýtur.

Félagið skal við framkvæmd samningsins huga sérstaklega að því að mæta þörfum fatlaðra barna og ungmenna í samræmi við stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks. Einnig skal setja upp áætlanir varðandi eineltismál og njóta samvinnu við Garðabæ um fræðslu og viðbrögð við þeim. Þar skal byggt á forvarnastefnu bæjarins þar sem m.a. kemur fram áhersla á að uppræta og vinna gegn einelti, finna fyrirbyggjandi lausnir og auka samvinnu allra uppeldisaðila til að uppræta einelti í skólum og félagsstarfi í Garðabæ

Á fésbókarsíðu GÁ má finna nánari upplýsingar um starfsemina.