17. nóv. 2021

Samstarfssamningur Garðabæjar og GKG

Á dögunum gerðu Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar og Garðabær með sér samstarfssamning um að efla barna og unglingastarf í golfi í Garðabæ.

  • Frá vinstri: Björg Fenger formaður íþrótta- og tómstundaráðs, Gunnar Einarsson bæjarstjóri, Guðmundur Oddsson formaður GKG, Agnar Már Jónsson framkvæmdastjóri GKG
    Frá vinstri: Björg Fenger formaður íþrótta- og tómstundaráðs, Gunnar Einarsson bæjarstjóri, Guðmundur Oddsson formaður GKG, Agnar Már Jónsson framkvæmdastjóri GKG

Á dögunum gerðu Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar og Garðabær með sér samstarfssamning um að efla barna og unglingastarf í golfi í Garðabæ.

Tilgangur samningsins er að efla barna- og unglingastarf í golfi innan Garðabæjar með markvissu starfi GKG á félagssvæði sínu.

Garðabær greiðir GKG árlega styrki sem skal nota í það góða ungmennastarf sem GKG stendur að.

Þá er tekið fram í samningnum að félagið skal huga sérstaklega að því að mæta þörfum fatlaðra barna og ungmenna í samræmi við stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks. 

Aðalstjórn ber ábyrgð á að félagið uppfylli skilyrði reglna til að teljast fyrirmyndarfélag ÍSÍ og starfi samkvæmt þeim markmiðum sem um slík félög gilda. Aðalstjórn ber einnig ábyrgð á að félagið og allar deildir þess kynni sér, innleiði og starfi samkvæmt leiðbeiningum og verklagsreglum ÍSÍ um kynferðislegt áreiti í íþróttum. Félagið skal einnig setja upp áætlanir varðandi eineltismál og njóta samvinnu við Garðabæ um fræðslu og viðbrögð við þeim. 

Á vef GKG má finna nánari upplýsingar um starfsemi golfklúbbsins.