9. nóv. 2022

Samstarfssamningur Garðabæjar og Samtakanna ´78

Þriðjudaginn 8. nóvember skrifuðu Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Daníel E. Arnarsson framkvæmdastjóri Samtakanna ´78 undir samstarfssamning um þjónustu samtakanna við Garðabæ.

  • Undirritun samnings við Samtökin ´78
    Undirritun samnings við Samtökin ´78. Frá vinstri: Sara Dögg Svanhildardóttir bæjarfulltrúi, Þorbjörg Þorvaldsdóttir bæjarfulltrúi, Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Daníel E. Arnarsson framkvæmdastjóri Samtakanna ´78, Björg Fenger bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs og Guðfinnur Sigurvinsson bæjarfulltrúi,

Þriðjudaginn 8. nóvember skrifuðu Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Daníel E. Arnarsson framkvæmdastjóri Samtakanna ´78 undir samstarfssamning um þjónustu samtakanna við Garðabæ. Markmiðið með samningnum er að stórefla hinsegin fræðslu og meðvitund um hinsegin málefni í sveitarfélaginu en á sama tíma að styðja við það fræðslustarf um hinsegin málefni sem nú þegar er unnið á vinnustöðum og í skólum Garðabæjar.

„Samningurinn markar tímamót fyrir okkur í Garðabæ. Hann teiknar upp fyrir okkur fjölbreyttar leiðir til þess að að fagna og fanga fjölbreytileikann í samfélaginu. Við höfum átt í góðu samstarfi við Samtökin ‘78 í gegnum tíðina í okkar fræðslustarfi. Nú erum við að formbinda samstarfið og nýtum markvisst þekkingu og innsýn frá samtökunum inn í fræðslu- og tómstundaumhverfið okkar. Það er sérstaklega mikilvægt að þetta gerist núna þar sem fordómar og óæskileg orðræða á sér stað í auknum mæli og við verðum að sporna gegn henni af krafti.“ sagði Almar Guðmundsson bæjarstjóri við undirritunina.

Daníel E. Arnarsson framkvæmdarstjóri Samtakanna ´78 tók einnig til máls við undirritunina:
,,Við í samtökunum ´78 hlökkum mikið til samstarfsins. Með þessum samningi er Garðabær að tryggja sér vöndustu hinseginfræðslu sem völ er á. Það er gríðarlega mikilvægt að sveitarfélög taki vel við sér eins og Garðabær hefur gert. Með því að binda fræðsluna í samningi er hægt vinna þetta skipulega fram í tímann og vinnan verður markvissari. Þessi fræðslusamningur við Garðabæ er einn sá víðtækasti sem samtökin hafa gert við sveitarfélag og með honum teljum við að starfsfólk og nemendur séu vel í stakk búin til að tala um hinseginleikann.“

Undirritun samnings við Samtökin ´78

Undirritun samnings við Samtökin ´78Fræðsla til starfsfólks og nemenda

Samningurinn kveður á um að Samtökin ´78 veiti Garðabæ þjónustu gegn ákveðnu fjárframlagi fyrir nokkra þjónustuþætti, til að mynda:

  • Fræðslu til starfsfólks grunnskóla í Garðabæ
  • Fræðslu til nemenda grunnskóla í Garðabæ
  • Fræðslu til stjórnenda sem vinna hjá Garðabæ
  • Endurgjaldlausa ráðgjöf Samtakanna ´78 til ungmenna í Garðabæ
  • Fræðslu til starfsfólks leikskóla í Garðabæ
  • Fræðslu til félags- og frístundamiðstöðva í Garðabæ

Undirbúningur að fræðslustarfinu er þegar hafinn og gert ráð fyrir að fyrstu fræðslufundir fari fram í lok þessa árs og byrjun næsta. Auk þeirra þjónustuþátta sem eru taldir upp hér fyrir ofan er einnig verið að skoða útfærslu á fræðslu til þjálfara íþróttafélaga.

Sameiginleg tillaga allra flokka í bæjarstjórn

Tillagan um samstarfssamning Garðabæjar við Samtökin ´78 var fyrst lögð var fram í bæjarráði Garðabæjar í sumar í samstarfi allra flokka í bæjarstjórn. Í tillögunni kom fram að Garðabær standi með hinsegin fólki og baráttu þeirra fyrir mannréttindum og mikilvægt sé að sveitarfélagið sýni stuðning sinn í verki.
Afar mikilvægt er að mannréttindi og virðing fyrir fjölbreytileika mannlífsins sé í hávegum höfð. Garðabær er barnvænt sveitarfélag og vinnur að innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og er aukin meðvitund um hinsegin málefni í sveitarfélaginu mjög mikilvægur þáttur í þeirri vinnu.