3. jan. 2024

Skátar sækja jólatré!

Jólatré verða hirt í Garðabæ dagana 7.-8. janúar

Venju samkvæmt verða jólatré hirt í Garðabæ dagana 7.-8. janúar (sunnudagur og mánudagskvöld).Íbúar sem ætla að nýta sér þjónustuna eru beðnir um að ganga frá trjánum út fyrir lóðamörk þannig að þau geti ekki fokið og að þau þvælist ekki fyrir vegfarendum.

Félagar úr Hjálparsveit skáta Garðabæ sjá um að hirða jólatrén eins og fyrri ár.Vinsamlegast athugið að íbúar geta einnig losað sig við jólatré á endurvinnslustöðum Sorpu bs.