20. ágú. 2019

Skólabíll úr Urriðaholti

Skólabíll verður í boði úr Urriðaholti fyrir þau börn sem fara í grunnskóla í Garðabæ annan en Urriðaholtsskóla.

  • Urriðaholtsskóli
    Urriðaholtsskóli

Skólabíll verður í boði úr Urriðaholti fyrir þau börn sem fara í grunnskóla í Garðabæ annan en Urriðaholtsskóla. Bíllinn hefur akstur mánudaginn 26. ágúst og keyrir hann frá Urriðaholtsskóla kl. 07.50 alla virka morgna með stoppi einnig við Náttúrufræðistofnun. 

Bíllinn keyrir börnin í þá grunnskóla sem þau eru að fara í og sækir hann þau aftur þegar skóla lýkur kl. 14:30, byrjar við Sjálandsskóla og keyrir upp í Urriðaholt með sömu stoppum og á morgnana. Þegar frístundabíll Garðabæjar hefur akstur 2. september fjölgar ferðum í Urriðaholt eftir skóla.