24. júl. 2020

SMS skilaboðakerfi Garðabæjar

Garðabær er með í notkun kerfi sem býður upp á að senda sms skilaboð til íbúa í ákveðnum götum og hverfum bæjarins. Það hefur reynst vel að nota það t.d. þegar viðgerðir hafa staðið yfir hjá Vatnsveitu Garðabæjar

  • Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog
    Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog

Garðabær er með í notkun kerfi sem býður upp á að senda sms skilaboð til íbúa í ákveðnum götum og hverfum bæjarins. Það hefur reynst vel að nota það t.d. þegar viðgerðir hafa staðið yfir hjá Vatnsveitu Garðabæjar. Þá eru send skilaboð til íbúa í þeim húsum, götum sem við á þegar loka þarf fyrir rennsli kalda vatnsins í stuttan tíma vegna lekaleitar og/eða viðgerðar.

Skráning í skilaboðakerfi Garðabæjar

Skilaboðakerfið er tengt við kortavef Garðabæjar og þar er hægt að velja úr einstaka hús og götur og þá fá símanúmer sem eru skráð á þau heimilisföng í gegnum þjónustuna 1819 sms skilaboð þegar við á.
Ef símanúmer viðkomandi er ekki skráð hjá 1819 er hægt að óska eftir því að skrá það inn í skilaboðakerfið hjá Garðabæ með því að senda tölvupóst á netfang Garðabæjar, gardabaer@gardabaer.is, með nafni, símanúmeri og heimilisfangi.