25. jan. 2019

Starfsmaður Garðabæjar í 44 ár

Sigurður Ottósson, aðstoðarverkstjóri í Þjónustumiðstöð Garðabæjar er að hætta störfum vegna aldurs eftir 44 ár sem starfsmaður Garðabæjar. 

  • Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur, Guðjón E. Friðriksson bæjarritari, Sigurður Óttóson aðstoðarverkstjóri í Þjónustumiðstöð og Gunnar Einarsson bæjarstjóri.
    Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur, Guðjón E. Friðriksson bæjarritari, Sigurður Ottóson aðstoðarverkstjóri í Þjónustumiðstöð og Gunnar Einarsson bæjarstjóri.

Sigurður Ottósson, aðstoðarverkstjóri í Þjónustumiðstöð Garðabæjar er að hætta störfum vegna aldurs eftir 44 ár sem starfsmaður Garðabæjar. Í morgun, 25. janúar var haldin kveðjustund fyrir Sigurð á bæjarskrifstofum Garðabæjar þar sem honum var þakkað fyrir samfylgdina og vel unnin störf í öll þessi ár.

Þess má geta að eiginkona Sigurðar, Alda Kolbrún Helgadóttir, deildarstjóri á leikskólanum Bæjarbóli, hefur einnig starfað í áratugi hjá Garðabæ.