11. maí 2021

Stjörnuhlaupið 2021

Stjörnuhlaupið fer fram í Garðabæ þann 29. maí næstkomandi. Boðið er upp á tvær vegalengdir, 10 km og 2 km, og hefst hlaupið kl. 16:00 frá Garðatorgi.

  • Stjörnuhlaupið 2021
    Stjörnuhlaupið 2021

Stjörnuhlaupið fer fram í Garðabæ þann 29. maí næstkomandi. Boðið er upp á tvær vegalengdir, 10 km og 2 km, og hefst hlaupið kl. 16:00 frá Garðatorgi.

Hlaupið er frá Garðatorgi kl. 16:00 en 2 km hlaupinu verður ræst heldur seinna. Vinsamlegast mætið tímanlega. Athygli er vakin á því að um nýjar hlaupaleiðir er að ræða. Boðið er uppá tvær vegalengdir, 2 km og 10 km.

Skráning og afhending gagna

Forskráning fer fram á hlaup.is til miðnættis föstudaginn 28. maí nk.
Keppnisgögn verða afhent í íþróttamiðstöðinni Ásgarði daginn fyrir hlaup, þ.e föstudaginn 28. maí á milli 16:00 og 19:00. Einnig verður hægt að nálgast hlaupagögn á hlaupadegi á Garðatorgi á milli 13:00 - 15:00.

Hlaupaleiðir

Uppdráttur af hlaupaleiðum er að finna á fésbókarsíðu Stjörnuhlaupsins.
Skilti verða við hvern kílómetra bæði í báðum hlaupunum og starfsmenn hlaupsins munu vakta alla helstu staði. Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér vel leiðina við skráningu. 

Hlaupið fer að þessi sinni að langmestu leyti fram á stígum bæjarins. Engu að síður þarf á nokkrum stöðum að fara yfir götur og eru þátttakendur því beðnir um að sýna varúð. Brautarvarsla verður víða og við gatnamót þar sem lokað verður fyrir umferð. Tímatöku og brautarvörslu lýkur 80 mínútum eftir að hlaupin eru ræst.