8. maí 2018

Stórátak við uppbyggingu skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins

Sveitarfélögin Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnesbær, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær og Reykjavíkurborg, sem sameiginlega reka skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins undirrituðu í gær tímamótasamkomulag sveitarfélaganna. 

  • Stórátak við uppbyggingu skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins
    Stórátak við uppbyggingu skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins
  • Stórátak við uppbyggingu skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins
    Stórátak við uppbyggingu skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins

Sveitarfélögin Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnesbær, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær og Reykjavíkurborg, sem sameiginlega reka skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins undirrituðu í gær tímamótasamkomulag sveitarfélaganna um stórátak við endurnýjun og uppbyggingu mannvirkja skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins í Bláfjöllum og Skálafelli. 


Undirritunin fór fram í þjónustumiðstöðinni í Bláfjöllum. 


Samkomulagið felur í sér að á næstu árum verður ráðist í endurnýjun og uppsetningu þriggja stólalyfta í Bláfjöllum og endurnýjun stólalyftu í Skálafelli. Að auki verður settur upp búnaður til snjóframleiðslu í Bláfjöllum. 


Samhliða þessum verkefnum verður unnið að áframhaldandi uppbyggingu á skíðgöngusvæði og bættum aðstæðum fyrir skíðagöngufólk. 


Áætlaður kostnaður vegna þessara framkvæmda á árunum 2019 – 2024 er um 3,6 milljarðar króna. 


Þessi verkefni eru fyrri áfangi af tveimur við heildaruppbyggingu skíðasvæðanna sem byggja á tillögu að framtíðarsýn um uppbyggingu og rekstur þeirra til ársins 2030. 


Með samkomulaginu verður rofin sú kyrrstaða sem verið hefur á uppbyggingu skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins um nokkurt skeið, og það markar því tímamót í uppbyggingu og rekstri skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.