Sumardjass í Garðabænum
G♭Jazz er djasshljómsveit sem samanstendur af nemendum á fjölbreyttum aldri úr Tónlistarskóla Garðabæjar. Í sumar hefur hljómsveitin spilað ljúfa tóna víðsvegar um Garðabæinn.
-
G♭Jazz í Bókasafni Garðabæjar
G♭Jazz er djasshljómsveit sem samanstendur af nemendum á fjölbreyttum aldri úr Tónlistarskóla Garðabæjar. Í sumar hefur hljómsveitin spilað ljúfa tóna víðsvegar um Garðabæinn. Það sem af er sumri hefur hljómsveitin komið saman og spilað fyrir gesti og gangandi m.a. á Jónsmessugleði Grósku, í Bókasafni Garðabæjar, á Ísafold og í félagsmiðstöðinni Jónshúsi. Framundan er spilamennska á fatamarkaði á vegum Skapandi sumarstarfs á Garðatorgi föstudaginn 27. júlí kl. 15:30 og spilamennska í sundlauginni í Ásgarði laugardaginn 28. júlí kl. 14 (sunnudagur til vara ef veðrið setur strik í reikninginn).
Alls eru hljómsveitarmeðlimir 7 talsins en hana skipa: Gabríel Einarsson á trommur, Guðmundur Ásgeir Guðmundsson á hljómborð, Jón Gunnar Hannesson á hljómborð, Jón Hörður Jónsson á kontrabassa, Jón Pétur Jóelsson á trompet, Ragnar Björgvin Tómasson á gítar og Ragnar Hermannsson á gítar.
Hljómsveitin vill með spilamennskunni lífga upp á bæjarbraginn í bænum og í leiðinni fá meiri spilareynslu.