16. jún. 2021

Sumarfjör -leikjanámskeið fyrir börn

Sumarfjör er leikjanámskeið á vegum Garðabæjar fyrir börn á aldrinum 8-12 ára. Námskeiðin eru í boði frá 21. júní - 30. júlí 2021.

  • Sumarfjör 2021
    Sumarfjör 2021

Sumarfjör er leikjanámskeið á vegum Garðabæjar fyrir börn á aldrinum 8 til 12 ára. Námskeiðin eru haldin í Sjálandsskóla, Hofsstaðaskóla, Flataskóla, Urriðaholtsskóla og Álftanesskóla.
Námskeiðið er ókeypis en takmarkað pláss er í boði.

Hægt er að velja um námskeið fyrir hádegi (10:00 - 12:00) eða eftir hádegi (13:00 - 15:00).
Hvert námskeið er vikulangt, hefst á mánudegi og lýkur á föstudegi og skráningu lýkur klukkan 12:00 á föstudegi fyrir komandi vikunámskeið. Námskeiðin eru í boði frá 21. júní - 30. júlí 2021.

Frekari upplýsingar um leikjanámskeiðið eru á fésbókarsíðu námskeiðsins Sumarfjör – Námskeið 2021 en þar er hlekkur í skráningu á námskeiðið. 

Sumarfjör er leikjanámskeið sem er haldið við grunnskóla Garðabæjar þar sem leiðbeinendur eru starfsmenn á aldrinum 18-25 ára í sumaratvinnuátaki Garðabæjar.