13. júl. 2018

Sumaropnun í Króki

Krókur á Garðaholti er lítill bárujárnsklæddur burstabær í eigu Garðabæjar.   Krókur var endurbyggður úr torfbæ í nokkrum áföngum á fyrri hluta 20. aldar og er elsti hlutinn frá 1923. 

Opið er í Króki kl. 13-17 alla sunnudaga í sumar og ókeypis inn.

  • Krókur á Garðaholti
    Krókur á Garðaholti

Krókur á Garðaholti er lítill bárujárnsklæddur burstabær í eigu Garðabæjar.   Krókur var endurbyggður úr torfbæ í nokkrum áföngum á fyrri hluta 20. aldar og er elsti hlutinn frá 1923. Fyrstu árin bjó ekkjan Jóhanna Jóhannsdóttir í Króki ásamt sex börnum og Halldóru móður sinni. Krókur var síðan stækkaður árið 1934 þegar Þorbjörg Stefanía Guðjónsdóttir og Vilmundur Gíslason fluttu þangað með fjögur börn og móður Vilmundar, Guðrúnu Sveinsdóttur. Þorbjörg og Vilmundur voru síðustu ábúendur í Króki. Þau áttu kýr, hænsni og kindur og ræktuðu grænmeti. Auk þess unnu bæði úti og á meðan annaðist Guðrún börnin. Þorbjörg lifði mann sinn og bjó í Króki þangað til hún dó árið 1985. Eftir það buðu erfingjar þeirra Vilmundar Garðabæ að eignast húsin með innbúi gegn því að bærinn yrði varðveittur. Garðabær tók við Króki árið 1998 og var hann þá gerður upp undir stjórn Jon Nordsteien arkitekts og Einars Hjartarsonar húsasmíðameistara. Yngstu dætur hjónanna í Króki, Elín og Vilborg, höfðu umsjón með hvernig húsmunum var raðað þannig að allt stendur eins og í tíð móður þeirra enda hefur skapast sú tilfinning að gamla konan hafi bara rétt skroppið af bæ. 

Ómetanlegt er að bæði híbýli og innbú eru varðveitt sem heild í Króki og þarna má sjá gott dæmi um húsakost og lifnaðarhætti alþýðufólks á fyrri hluta 20. aldar. Krókur er staðsettur stutt frá Garðakirkju í Garðahverfi við Garðaholt, á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar.  Bílastæði eru við samkomuhúsið á Garðaholti.

Opið er í Króki kl. 13-17 alla sunnudaga í sumar og ókeypis inn. Safnvörður er á staðnum og veitir leiðsögn.

Krókur á facebook