16. mar. 2020

Sundlaugar verða opnar um sinn

Sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu verða opnar í samkomubanni.

  • Ásgarðslaug
    Ásgarðslaug

Sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu verða opnar í samkomubanni. Gufu- og eimböðum verður lokað og stöku pottar í nokkrum sundlaugum verða lokaðir ásamt rennibrautum.

Farið verður að tilmælum almannavarna um fjöldatakmarkanir en fækka þarf skápum sem eru í notkun vegna fjarlægðarreglna. Þá verður takmörkuð nýtingin á hankdlæðarekkum og sömuleiðis nýting á sturtum.

Búast má við fjölgun heimsókna frá börnum vegna skerðingar á skóla og frístundastarfi. Sundæfingar verði ekki leyfðar til 23. mars samanber tilmæli ÍSÍ. Sundleikfimi eldri borgara verður felld niður.

Aukin þrif verða í sundlaugunum, starfsfólk lauganna mun spritta og þrífa snertifleti reglulega, bekki, borð, skápa, lykla, sápuskammtara, salerni og þess háttar. Þá verða gestir beðnir um að passa upp á fjarlægðartilmæli sóttvarnarlæknis um tveggja metra bil sín á milli í búningsklefum, sturtum og pottum.

Ákvarðanir varðandi opnun sundlauganna verða endurskoðaðar eftir því sem fram líður og metið hvernig til hefur tekist út frá sóttvarnarsjónarmiðum.

Sjá afgreiðslutíma sundlauga Garðabæjar í Ásgarði og Álftaneslaug.