29. sep. 2020

Þjónusta á tímum Covid

Í ljósi hættustigs almannavarna sem er enn í gildi vegna COVID-19 faraldursins eru íbúar og viðskiptavinir sem eiga erindi við bæjarskrifstofur Garðabæjar hvattir til að senda tölvupóst á gardabaer@gardabaer.is, nota netspjall eða hringja í þjónustuverið í s. 525 8500 til að takmarka komur á bæjarskrifstofurnar.  

  • Ráðhús Garðabæjar
    Ráðhús Garðabæjar

Í ljósi hættustigs almannavarna sem er enn í gildi vegna COVID-19 faraldursins eru íbúar og viðskiptavinir sem eiga erindi við bæjarskrifstofur Garðabæjar hvattir til að senda tölvupóst á gardabaer@gardabaer.is, nota netspjall eða hringja í þjónustuverið í s. 525 8500 til að takmarka komur á bæjarskrifstofurnar.  

Vegna aukinna smita í samfélaginu undanfarnar vikur hafa gestakomur verið takmarkaðar í ráðhús Garðabæjar.  Hluti starfsmanna ráðhússins er í fjarvinnu næstu vikur.
 Í haust eins og í vor hefur verið hvatt til fjarfunda í starfsemi Garðabæjar en áfram er fundað í fundarsölum bæjarins í Sveinatungu á Garðatorgi og sóttvarna gætt.  

  • Bæjarskrifstofur Garðabæjar eru opnar á eftirfarandi tímum:
    Mánudaga-miðvikudaga frá kl. 08-16, fimmtudaga frá 08-18 og föstudaga frá kl. 08-14.
    Tímabundin ráðstöfun frá 21. september: Þjónustuver Garðabæjar í ráðhúsinu á Garðatorgi 7 er lokað fyrir gesti í hádeginu frá 12-13 en síminn er opinn 525 8500.
  • Í turninum í anddyri bæjarskrifstofanna er hægt að skilja eftir teikningar í merktu íláti. Önnur gögn en teikningar má skilja eftir í læstu pósthólfi sem er staðsett hægra megin fyrir utan innganginn í ráðhústurninn merkt bæjarskrifstofur.
  • Garðabær heldur einnig úti fésbókarsíðu, facebook.com/Gardabaer.Iceland/, og þar geta viðskiptavinir sent inn skilaboð sem er svarað á afgreiðslutíma bæjarskrifstofanna.
  • Bein símanúmer og netföng starfsmanna Garðabæjar má einnig finna hér á vefnum.


ENGLISH

Due to the disease COVID-19 the current response phase in Iceland i Emergency phase. Inhabitants and other guests that need to contact Garðabær Municipality Offices are kindly asked to contact Garðabær by e-mail, gardabaer@gardabaer.is or by phone at our Service Center tel 525 8500 to decrease visits to our Municipal Offices.

  • The Service Center phone, 525 8500, e-services such as web-chat online (icelandic "netspjall"), and e-mail gardabaer@gardabaer.is is open from 08-16 o‘clock Mondays to Wednesdays, from 08-16, Thursdays from 08-18 and 08-14 on Fridays.
    Temporary from 21. september: Garðabær's Service Center at Garðatorg 7 is closed for guests during lunchtime from 12-13 o'clock, the phoneline is open during that time 525 8500.
  • The front lobby at the town hall in Garðatorg 7 will be open during office hours for those who need drop off architectural drawings. Other documents than drawings can be dropped off at a mailbox on the right side of the entrance to the town hall.
  • Garðabær is also on facebook, and messages sent through our facebook-page are replied during office hours.
  • Direct phonenumbers and e-mails to employess can be found here on the web-site.